Viðskiptavinir muna ekki alltaf hvað var sagt eða gert. Þeir muna hvernig þeim leið og sú upplifun mótast ekki aðeins í framlínunni heldur einnig af þeim áherslum, vinnubrögðum og stuðningi sem stjórnendur skapa.
Á þessu staðnámskeiði er farið yfir hvernig stjórnendur og millistjórnendur geta stuðlað að framúrskarandi þjónustu, byggt upp traust og skapað samræmda upplifun fyrir viðskiptavini. Farið verður í raunhæf dæmi úr stjórnendastarfi, krefjandi samtöl, kvartanir, stuðning við starfsfólk og þau augnablik þar sem viðbrögð stjórnandans skipta mestu máli.
Námskeiðið hentar stjórnendum, millistjórnendum og teymisstjórum sem bera ábyrgð á starfsfólki, þjónustu eða upplifun viðskiptavina. Áherslan er á skýrar væntingar, markvissa eftirfylgni og hagnýt verkfæri sem hjálpa stjórnendum að gera góða þjónustu að eðlilegum hluta af daglegu starfi.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
- hvernig stjórnendur móta þjónustuupplifun viðskiptavina í gegnum starfsfólkið
- hvernig skýrar væntingar, vinnubrögð og eftirfylgni skapa samræmi í þjónustunni
- hvernig styðja má starfsfólk í kvörtunum og krefjandi samskiptum
- hvernig veita má gagnlega endurgjöf og taka á þjónustu sem stenst ekki væntingar
- hvernig byggja má upp fagmennsku, ábyrgð og mannlega nálgun innan teymisins
