Hvað færðu út úr námskeiðinu?
Chanel Björk er leiðandi rödd í umræðu um fjölmenningu á Íslandi og deilir hér innsýn, verkfærum og reynslu sem geta nýst bæði í daglegu lífi og á vinnustöðum. Á námskeiðinu fer hún meðal annars yfir:
- hvað felst í fjölmenningarsamfélagi, hvernig íslenskt samfélag hefur þróast og hvaða mýtur og staðreyndir einkenna umræðuna
- hvað fordómar eru, hvernig þeir mótast í samfélaginu og hvernig ómeðvituð hlutdrægni getur haft áhrif á viðmót okkar
- hvernig hugmyndir, alhæfingar og staðalmyndir geta haft áhrif á hegðun, samskipti og ákvarðanir
- hvernig rasismi, öráreiti og „saklaus“ ummæli birtast í daglegu lífi og hvaða áhrif þau geta haft
- hvernig „við og hin“ hugsun og öðrun verður til og hvaða áhrif hún hefur á einstaklinga og samfélag
- hvernig við getum aukið meðvitund, tekið ábyrgð og stuðlað að virðingu, fjölbreytileika og inngildingu í daglegu lífi og á vinnustöðum
Kynntu þér innihaldið
Inngangur
02:06Hvaðan ertu?
03:04Þegar samfélög breytast hratt
03:48Fjölmenningarsamfélag
06:41Mýtur
03:43Fordómar
08:19Hvaðan lærum við fordóma?
07:58Rasismi
09:25Öráreiti
03:37Öðrun
03:59Að fagna fjölbreyttri mannflóru
07:03Kennarinn þinn
Chanel Björk
Chanel Björk er fjölmiðlakona, fyrirlesari og stofnandi fræðsluvettvangsins Mannflórunnar. Hún hefur vakið athygli fyrir störf sín á sviði fjölmenningar og samfélagsumræðu, meðal annars í sjónvarpsþáttunum Mannflóran sem sýndir voru á RÚV. Þar fjallaði hún um reynslu fólks af erlendum uppruna og hvernig það er að tilheyra fleiri en einum menningarheimi á Íslandi.
Chanel stofnaði Mannflóruna árið 2020 með það að markmiði að skapa rými fyrir fræðslu og opna umræðu um fjölmenningu, fordóma og rasisma í íslensku samfélagi. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra fyrir vinnustaði og skóla um allt land og byggir nálgun sína bæði á faglegri þekkingu og persónulegri reynslu sem kona með rætur til Íslands, Bretlands og Jamaíka. Í starfi sínu leggur hún áherslu á meðvitund, virðingu og hagnýtar leiðir til að stuðla að meiri skilningi og inngildingu í samfélaginu.
Fáðu aðgang að námskeiðinu
Veldu það sem hentar þér, stakt námskeið eða aðgangur að öllu efni á Frama.
Stakt námskeið
Ævilangur aðgangur að þessu námskeiði.
Áskrift
Rukkað árlega
Öll námskeið Frama.
Fjölskylduáskrift
Rukkað árlega
Öll námskeið Frama. Bjóddu fjórum til viðbótar, fimm aðgangar á einu verði.
Mörg stéttarfélög endurgreiða stóran hluta gjaldsins. Sjá nánar
Viltu gefa námskeiðið? Kaupa gjafabréf
Endurgreiðslur stéttarfélaga
Endurgreiðslur eru mismunandi eftir stéttarfélögum og fræðslusjóðum. Finndu þitt stéttarfélag hér að neðan.
