Á ég að greiða niður skuldir, byggja upp varasjóð eða fjárfesta? Og hvernig veit ég hvaða fjárfestingar henta mér og mínum markmiðum?
Á þessu þriggja tíma námskeiði færðu skýrari mynd af því hvernig ólíkir hlutar fjármálanna tengjast. Við skoðum hvað gæti verið skynsamlegt að setja í forgang, hvernig helstu fjárfestingarleiðir virka og hvernig hægt er að byggja upp eignasafn sem tekur mið af þínum markmiðum.

Við munum síðan búa til okkar eigið fjármálamælaborð sem þátttakendur geta nýtt sér í daglegu lífi eftir námskeiðið.
Þú ferð heim með hagnýt verkfæri til að meta eigin stöðu, bera saman valkosti og ákveða næstu skref. Markmiðið er að þú skiljir ekki aðeins fjármálin betur heldur eigir auðveldara með að nýta þekkinguna.
Námskeiðið hentar bæði þeim sem vilja fá betri yfirsýn yfir fjármálin og þeim sem eru þegar byrjaðir að fjárfesta en vilja taka markvissari ákvarðanir um eignasafnið sitt.
Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:
- Hvernig hægt er að forgangsraða á milli skulda, varasjóðs og fjárfestinga
- Hvernig helstu sparnaðar- og fjárfestingarleiðir virka og hvað getur hentað ólíkum markmiðum
- Hvað vísitölusjóðir eru og hvernig hægt er að fjárfesta í þeim frá Íslandi
- Hvernig byggja má upp dreift eignasafn og aðlaga áhættuna þegar aðstæður breytast
- Hvaða áhrif kostnaður, skattar og verðbólga geta haft á fjárfestingar
- Hvernig nýta má gervigreind til að fá yfirsýn og skoða ólíkar sviðsmyndir
- Hvernig breyta má þekkingunni í skýr og framkvæmanleg næstu skref